Fór út að rölta í gær eins og ég sagði frá, er nú komin á Klaustur...........

................  allavega í huganum LoL  nei, reyndar fór ég með strætó í bæinn og heimsótti minn kæra föður og svo kom danski sonurinn fljúgandi heim í blíðunni og svo austur með mömmu sinni, mikið elskar maður alltaf börnin sín, var að hugsa það í gærkvöldi þegar ég læddist fram og slökkti á sjónvarpinu og hann steinsofnaður, hvað ég er heppin kona. Á þrjú börn og fjórar stjúpdætur og allir hressir og kátir. Ætla því að halda áfram að vera jákvæð og bjartsýn og slá á létta strengi.

Í sambandi við fréttina sem ég tengi hér við þá er ég ósátt við Svandísi, mér finnst hún ekki hugsa þetta nógu vel, okkur vantar orku hér í sveit og reyndar vantar okkur líka fyrirtæki sem getur nýtt orkuna hér heima í héraði.  Vona að sveitastjórnarmenn nái að vinna þetta mál.

Farin á meira rölt.

labba


mbl.is SA gagnrýna umhverfisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver skilur valdsjúka jakkafatakalla??

sætt

Farin út og hætt að pæla í Icesave.


mbl.is Lee Buchheit verður ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla þá að lifa í voninni um að lagið batni.

Mér finnst lagið svo snubbótt og innantómt eins og ég sagði í gær og er að vona að þeim takist að setja meiri tilfinningu og hita í lagið, röddin hennar Heru ræður alveg við það. Ég hef alltaf lúmskt gaman af Eurovision og vonandi verður það líka í ár, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar LoL alltaf gott að geta skipt um skoðun ef með þarf. 


mbl.is „Gerum pottþétt breytingar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónlist fyrir flesta, skora á Jens, Omma ofl. sem hafa vit á tónlist að kíkja á þetta hjá mér.

 

 Þessi hljómsveit "ÚTLAGAR" var að spila á Kríunni hér í gærkvöldi. Ég er búin að eiga diskinn með þeim lengi og líkar hann vel, ég setti nokkur lög með þeim í spilarann hér til vinstri. Langar í álit frá ykkur.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband